Færsluflokkur: Bloggar
Aung San Suu Kyi hefur nú verið dæmd fyrir að brjóta ákvæði stofufangelsis síns. Hún hefur nú setið í fangelsi í 13 af síðustu 20 árum. Hún er ein af yfir 2.100 pólitískum föngum í Mjanmar.
Gríptu til aðgerða í þágu Aung San Suu Kyi !
Suu Kyi sakfelld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mjanmar: frelsið Aung San Suu Kyi !
31.7.2009
Aung San Suu Kyi er nú fyrir rétti fyrir að brjóta ákvæði stofufangelsis síns. Óvíst er hvort henni verður sleppt, en hún hefur nú setið í fangelsi í 13 af síðustu 20 árum. Hún er ein af yfir 2.100 pólitískum föngum í Mjanmar.
Gríptu til aðgerða í þágu Aung San Suu Kyi !
Dómi yfir Suu Kyi frestað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fólk, mestmegnis stuðningsfólk forsetaframbjóðandans Mir Hossein Mousavi, hefur mótmælt á götum Teheran og annarra borga. Margir hafa verið drepnir og hundruð handtekin.
Amnesty International telur öryggissveitir líklegar til að beita mótmælendur áframhaldandi ofbeldi. Hinir handteknu eiga á hættu að sæta pyndingum og annarri illri meðferð.
Hvettu írönsk stjórnvöld til að gæta hófs í samskiptum sínum við mótmælendur og tryggja að hinir handteknu verði ekki pyndaðir eða látnir sæta annarri illri meðferð.
Sendu bréf til sendiherra Íran gagnvart Íslandi !
Mousavi kvartar undan ritskoðun og höftum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þúsundir mótmælenda sættu ofbeldi þegar þeir gengu um götur í Íran að loknum forsetakosningum, sem haldnar voru í landinu þann 12. júní síðastliðinn. Mótmælendur andæfðu sigri sitjandi forseta, Mahmoud Ahmadinejad. Amnesty International hefur hvatt írönsk stjórnvöld til að hefja tafarlausa rannsókn á ofbeldi öryggissveita gegn mótmælendum.
Mótmælafundur hafinn í Íran | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimurinn situr á félagslegri, pólitískri og efnahagslegri tímasprengju sem sækir orku sína til vaxandi mannréttindakreppu. Þetta er meðal þess sem kemur fram i ársskýrslu Amnesty International 2009 sem kynnt er í dag. 28.maí.
Í skýrslunni er greint frá mannréttindabrotum í 157 löndum. Skýrslunni fylgir samantekt, þar sem gerð er grein fyrir ástandi mannréttinda í öllum heimsálfum. Inngang ritar Irene Khan aðalframkvæmdastjóri Amnesty International.
Kreppan grefur undan mannréttindum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
65.000 manns á flótta
11.5.2009
Að minnsta kosti 65.000 manns hafa neyðst til að flýja átökin milli pakistanskra Talibana og stjórnarhersins í Neðri-Dir í norðvestanverðu Pakistan. Þetta fólk þarfnast aðstoðar.
Fulltrúar pakistönsku samtakanna Al Khidmat tjáðu Amnesty International í Timergara, stærsta bæ Neðri-Dir, að þeir vissu um 65.000 flóttamenn hið minnsta. Þeir sögðu jafnframt að þeir væru þeir einu sem væru að hjálpa flóttafólkinu. Engin aðstoð bærist frá stjórnvöldum.
Stjórnarherinn herðir sókn sína í Pakistan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Amnesty International lýsti því yfir í dag að stefna Barack Obama Bandaríkjaforseta í hinu svokallaða, stríði gegn hryðjuverkum á fyrstu 100 dögunum í embætti, einkennist fremur af loforðum um breytingar en raunverulegum aðgerðum.
Lýsir aðferðunum sem pyntingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Jafnréttisherferðin er heiti á írönskum kvenréttindasamtökum sem komið var á fót árið 2006. Samtökin berjast fyrir afnámi misréttis gegn konum í íranskri löggjöf. Nokkrir aktívistar úr þeirra röðum hafa verið handteknir og dregnir fyrir rétt, ákærðir fyrir aðgerðir sem eru algerlega löglegar, t.d. að skipuleggja friðsamlegar samkomur, fræðslufundi og undirskriftasöfnun fyrir lagabreytingum.
Íranskur kvenréttindafrömuður dæmdur í árs fangelsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Franska lögreglan er iðulega sökuð um alvarleg mannréttindabrot, oft gegn minnihlutahópum, en er sjaldan dregin til ábyrgðar fyrir þau brot, segir í nýrri skýrslu Amnesty International.
Ásakanir um ólögmæt dráp, barsmíðar, kynþáttaníð og óhóflega valdbeitingu eru sjaldan rannsakaðar að gagni.
300 handteknir í Strassborg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Endum ofbeldi gegn konum
2.4.2009
Ofbeldi gegn konum er oft látið óátalið og sjaldan er refsað fyrir slíkt ofbeldi.
Konur og stúlkur sæta meira ofbeldi en aðrir í stríði og friði, af hálfu ríkisvaldsins, samfélagsins og fjölskyldunnar.
Líf án ofbeldis eru grundvallarmannréttindi
Hvort sem um er á heimilinu eða átakasvæðum verður ofbeldi gegn konum að linna.
Keira Knightley beitt ofbeldi í auglýsingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |